Lög Craniofélags höfuðbeina-og spjaldhryggsjafnara
Nafn og heimili
1. grein:
Heiti félagsins er “Cranio, félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara”, í daglegu tali kallað “Cranio”. Enskt heiti félagsins er “Cranio, The Icelandic CranioSacral Therapy Association“. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
Tilgangur félagsins
2. grein:
Tilgangur félagsins er:
a) að standa vörð um starfsumhverfi höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara,
b) að tryggja félagsmönnum aðgang að aukinni menntun og að vinna að viðurkenningu náms í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,
c) að auka skilning og viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda, heilbrigðisstétta og almennings á höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun,
d) að vinna að því að höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun verði viðurkenndur valkostur innan heilbrigðiskerfisins.
Félagsaðild
3. grein:
a) Rétt til félagsaðildar eiga þeir sem hafa lokið námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun sem Cranio, félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, viðurkennir.
b) Rétt til nemendaaðildar hafa þeir sem hafa lokið hluta náms í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun sem Cranio, félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara, viðurkennir.
c) Stjórn félagsins er heimilt að veita einstaklingum heiðursaðild að félaginu að fengnu samþykki aðalfundar, þar sem einfaldur meirihluti ræður.
d) Kjósi félagsmaður að ganga úr félaginu skal skrifleg úrsögn send stjórn.
Fjármál
4. grein
a) Árgjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert.
b) Stjórn og varamenn í stjórn greiða hálft félagsgjald.
c) Skuldi félagsmaður árgjald fyrir tvö ár, er stjórninni heimilt að fella hann út af félagaskrá, enda hafi honum verið send aðvörun áður.
d) Heiðursfélagar skulu undanþegnir greiðslu félagsgjalda.
e) Reikningsár félagsins er almanaksárið.
f) Allur fjárhagslegur ágóði sem kann að verða af starfsemi félagsins skal nýttur til að auka veg höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnunar á Íslandi eða til rannsókna á virkni meðferðarinnar.
Skyldur félagsmanna
5. grein:
Félagsmönnum ber að hlíta siðareglum félagsins í hvívetna. Sé félagsmaður sakaður um faglegt misferli, um að brjóta lög félagsins eða vinna gegn hagsmunum þess, skal stjórn vísa máli hans til siðanefndar til umfjöllunar. Leggi siðanefnd til brottvísun úr félaginu skal einfaldur meirihluti greiddra atkvæða á félagsfundi ráða.
Fagnefnd
6 grein:
Fagnefnd hefur það hlutverk að:
a) skilgreina það nám sem félagið viðurkennir,
b) skilgreina kröfur félagsins um símenntun félagsmanna.
Námskröfur skulu vera aðgengilegar félagsmönnum.
Ennfremur skal fagnefnd meta hvort umsækjendur um félagsaðild uppfylli sett skilyrði um nám.
Stjórn félagsins
7. grein:
Stjórn félagsins skal skipuð fimm fullgildum félagsmönnum, þar af þremur aðalstjórnendum og tveimur til vara, sem kosnir eru á aðalfundi félagsins til tveggja ára í senn. Formann skal kjósa beinni kosningu, en að öðru leyti skiptir kjörin stjórn með sér verkum og kýs gjaldkera og ritara úr sínum hópi.
Formaður boðar til og stýrir stjórnarfundum, sem skulu haldnir eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Hann er fulltrúi félagsins út á við.
Ritari ritar fundargerðir og varðveitir. Félagsmenn skulu hafa aðgang að fundargerðum stjórnar.
Gjaldkeri og formaður eru prókúruhafar en meirihluti stjórnarmanna ritar firma félagsins. Stjórnin ber ábyrgð á öllum rekstri félagsins og kemur fram fyrir hönd þess. Stjórn skipar í nefndir félagsins, utan siðanefnd, sem kjörin er á aðalfundi. Stjórn félagsins getur tilnefnt fulltrúa til trúnaðarstarfa fyrir hönd félagsins út á við.
Komi fram skrifleg vantrauststillaga á stjórn skal hún tekin fyrir á löglega boðuðum aukaaðalfundi. Hljóti hún samþykki tveggja þriðju hluta greiddra atkvæða telst stjórnin fallin og skal kjósa nýja, sem tekur við þegar í stað.
Almennir félagsfundir
8. grein:
Stjórn skal boða félagsfundi skriflega með minnst viku fyrirvara, nema formanni eða stjórn þyki brýn nauðsyn bera til skemmri fyrirvara. Stjórn er skylt að halda félagsfund innan tveggja vikna ef tíundi hluti fullgildra félagsmanna leggur fram skriflega beiðni þar um.
Aðalfundur
9. grein:
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda árlega fyrir 15. maí og til hans skal boðað skriflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað.
10. grein:
Dagskrá aðalfundar skal vera:
a) kosning fundarstjóra og fundarritara,
b) lesin fundargerð síðasta aðalfundar,
c) skýrsla formanns,
d) endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar,
e) atkvæðagreiðsla um upphæð árgjalds,
f) kosning formanns til tveggja ára, annað hvert ár,
g) kosning eins aðalstjórnanda og eins varamanns til tveggja ára,
h) kosning formanns siðanefndar til tveggja ára, annað hvert ár,
i) kosning eins aðalmanns og eins varamanns í siðanefnd til tveggja ára,
j) kosning fulltrúa til setu á þingi Bandalags íslenskra græðara,
k) kosning eins skoðunarmanns reikninga og annars til vara,
l) afgreiðsla tillagna um lagabreytingar og breytingar á siðareglum,
m) önnur mál.
11. grein:
Aðeins fullgildir félagar sem eru skuldlausir við félagið hafa atkvæðisrétt og kjörgengi í kosningum. Kosningar skulu vera leynilegar, komi fram ósk um það.
12. grein:
Lögum félagsins og siðareglum verður aðeins breytt á aðalfundi og skal breytingartillögum skilað skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund. Nái breytingartillaga samþykki tveggja þriðju hluta greiddra atkvæða öðlast hún gildi.
Slit félagsins
13. grein:
Leggi félagsmaður fram skriflega tillögu um að félagið skuli lagt niður skal hún tekin fyrir á löglega boðuðum aukaaðalfundi og skoðast samþykkt hljóti hún þrjá fjórðu hluta greiddra atkvæða. Verði félagið lagt niður skulu eignir þess renna til Bandalags íslenskra græðara.